
Líf eftir ofbeldi eru verkfæri fyrir fólk sem á það sameiginlegt að hafa orðið fyrir ofbeldi, er að vinna með afleiðingar þess og deilir styrk, von og heiðarleika. Hvort sem ofbeldið átti sér stað í æsku eða á fullorðinsárum, eða var andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt eru allir þolendur velkomnir í Líf eftir ofbeldi. Við viljum stoppa samskiptamynstur sem einkennast af ofbeldi í allri sinni mynd í lífi okkar.
Ofbeldi er mynstur sem einkennist af skaðlegri hugsun, gjörðum eða hegðun sem hefur skaðleg áhrif á okkur sjálf og aðra. Dæmi um ofbeldi: óheiðarleiki, stjórnun, vanræksla og að misnota vald, stöðu eða afl. Atvik þar sem við upplifum ofbeldi geta verið sjaldgæf en reynsla af ofbeldi vekur ótta hjá þolanda um að verða fyrir ofbeldi í framtíðinni.
Ef að ofbeldi hefur þróast í samskiptum getur átt sér stað andlegt ofbeldi, líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, fjárhagslegt ofbeldi túarlegt ofbeldi sem einkennast af einangrun, afneitun, gera lítið úr, hótanir, gaslýsing o.s.frv.
Ef þú vilt rekja upp þetta mynstur og lifa betra lífi þá er von.
Kveikjur (e. trigger) eru viðbrögð við manneskju, stað, hlut, aðstæðum eða hugsunum. Kveikjur grundvallast á ótta, ógn, erfiðri lífsreynslu, skömm eða vanræktum þörfum.
Er Líf eftir ofbeldi fyrir mig?
Við höfum við gefist upp á að reyna a stjórna fólki og aðstæðum. Við viljum ekki meira af sársauka og átökum. Við eigum það sameiginlegt að efast um hvort við tilheyrðum hópunum og hvort við gætum fengið hjálp í aðstæðum okkar. Fyrsta skrefið var að viðurkenna fyrir okkur sjálfum og öðrum aðila sem við treystum hver okkar reynsla af ofbeldi er.
Þriðjudagar kl. 20:00 & Föstudagar kl. 12:00
Sálgæslu- og Fjölskylduþjónusta kirkjunnar,
Háteigsvegur 27-29.